þriðjudagur, júlí 01, 2008

Tíminn líður hratt á gervihnatta öld!

Jæja gott fólk, þ.e. ef einhver les þetta blogg ennþá. Ég var að skoða myndalbúmið okkar og hélt að ég væri orðin rugluð - 7 mánuðir síðan ég updeitaðið síðast! Hélt í alvörunni að það væru í mestalagi 2 mánuðir. Ég held ég sé ennþá með brjóstaþoku þó svo drengurinn sé orðinn ......... (hugs, hugs) að verða 21 mánaða (þetta tók smá tíma að reikna).

Eyþór fór með krakkana og hundana í sveitina til mömmu hans. Ég verð bara að segja það að það er alveg ótrúleg tilfinning að vera EIN HEIMA, ætla að njóta þess og gera helst ekki neitt ....... kannski smá tiltekt svona til þess að njóta þess enn frekar :-) Þetta er alls ekki illa meint heldur er þetta mjög sjaldgæft að það sé gjörsamlega enginn heima. Kannski ég noti tækifærið og fái nota tölvuna og uppfæri myndaalbúmið :-) Lofa hinsvegar engu um framhaldið en aldrei að vita nema ein og ein lína slæðist hér inn.

Nýjar myndir af börnunum - smá erfitt að ná mynd af Ólöfu þar sem hún er síhoppandi :-)



Svona fyrir þá sem ekki vita að þá fengum við okkur annan hund, veit að við erum smá klikkuð en þetta er samt alveg yndislegt. Hundunum semur rosa vel og bara rosa gaman.




Perla er svo búin að bjarga barnapössuninni þar sem dagmömmurnar fóru í 2ja mánaða frí. Ási fer svo á leikskóla með haustinu og það verður rosalega ljúft, bæði lægri kostnaður og styttra að fara.

bless í bili eða þar til næst

miðvikudagur, janúar 02, 2008

Gleðilegt nýtt ár


Óskum öllum vinum og ættingjum nær og fjær gleðilegs nýs árs.

Nýárskveðja,

Eyþór, Inga María, Perla Ósk, Ólöf María og Ásbjörn Freyr

sunnudagur, desember 16, 2007

Nýr sími o.fl.

Jæja þá er gamli síminn minn dauður. Ég gat ekki tekið læsinguna af símanum nema slökkva á honum og kveikja, gat ekki hringt og gat ekki séð símanúmerin í símaskránni minni - semsagt handónýtur :/ Ási er líka búinn að vera duglegur við að naga takkana af honum og vantaði orðið 3 takka þannig ég gat ekki hringt í númer sem voru með 7 eða 0 - átti líka orðið í vandræðum með að skrifa sms þar sem 0 var dottinn af og því ekkert bil í skilaboðunum hjá mér - allt í langri romsu sem og takkinn sem gerir há- og lágstafi var líka dottinn af. Því var bara eitt að gera .... kaupa jólagjöf fyrir sjálfa mig. Ég fékk mér þennan glæsilegan hvítan NOKIA 6120 síma , ekkert smá flottur.
Nú get ég svarað sms aftur :-)

Annars er bara fínt að frétta af okkur. Ég er komin með vinnu hjá Deliotte og byrja á miðvikudaginn. Er rosa spennt að byrja en er ekki er laust við smá kvíða :-p en þetta verður bara spennandi. Eyþór er ekki enn kominn með neitt sem er kannski bara ágætt að vissu leiti, það verður fínt fyrir hann að pústa aðeins í janúar eftir erfiða törn nú í desember og síðustu mánuði. Stelpurnar eru komnar í jólafrí eftir jólaskemmtun í skólanum á fimmtudaginn þannig vonandi fer maður að hrökkva í jólagírinn. Ég er ekki komin í neitt sérstakt jólaskap ennþá en vonandi kemur það. Ég ætla að skella mér á mánudaginn og þriðjudaginn í búðir og klára jólagjafainnkaupin, nenni ekki að eyða alltof löngum tíma í þetta, fæ einhvernvegin hálfgerða innilokunarkennd í þessu kraðaki og verð bara pirruð.

Ási er hress, búinn að vera MJÖG duglegur að tæta hér heima sem og hjá dagmömmunni :-o en hann er alltaf jafn yndislegur. Hann fór í sína fyrstu klippingu 29. nóvember sl. og fékk þessa fínu herraklippingu.
Perla átti afmæli fyrir rétt rúmri viku og er því orðin 13 ára gömul skvísa - það er alveg með ólíkindum hvað tíminn líður hratt. Ólöf verður svo 10 ára á miðvikudaginn nk.
Bið að heilsa ykkur í bili og ..... best að segja ekki meir, sjáum bara til hversu dugleg ég verð í blogginu :-D það er aldrei að vita ;-p

föstudagur, nóvember 23, 2007

Myndir

Loksins, loksins nýjar myndir - fullt af nýjum myndum komnar inn.

miðvikudagur, október 24, 2007

Ási pjási

Ási átti afmæli um daginn og var 1. árs litli gæinn. Það var voða gaman fengum litla gutta í heimsókn til okkar og þeir gauruðust aðeins. Ási er svo byrjaður hjá dagmömmu og gengur vel núna. Hann er hinsvegar búinn að vera í aðlögun síðan 1. október en er búinn að vera svo lasinn og kvefaður þannig þetta er búið að ganga hálf brösulega. Hann fékk pensillin þar sem hann var með smá í eyrunum og er að verða fullfrískur. Þessi vika gengur líka mjög vel hjá dagmömmunni og honum líkar bara vel núna og er líka orðinn duglegur að smakka matinn sem hann vildi ekki gera áður. Eflaust tengt veikindunum.
Þannig allt í góðum gír þessa dagana. Meira seinna :-)

Útskrift

Jæja þá er loksins komið að því. Mér tókst að klára námið og útskrifast á laugardaginn nk. Svei mér þá ef mér hlakkar bara ekki smá til. Er búin að versla dragt, fara í klippingu, láta framkalla andlitið -hihihi þ.e. fyrir þá sem ekki vita þá er það litun og plokkun og svo á að gera neglurnar fínar á morgun. Held semsagt að ég sé bara alveg að verða tilbúin fyrir útskriftina.

Ég á að vera mætt í síðastalagi kl. 12 upp í Háskólabíó og svo mæta ættingjarnir "2" sem mega koma fyrir kl. 13, athöfnin byrjar svo kl. 13. Ég ætla nú samt að leyfa 3-4 að koma, þ.e. er Eyþór og stelpurnar og svo ætlar Jónki bróðir að koma og taka myndir. Get ekki hugsað mér að skilja aðrahvora stelpuna eftir heima. Mér finnst þær nú búnar að standa þvílíkt við bakið á mér að mér finnst þær hafi nú báðar rétt á því að koma. Nú ef það verður eitthvað vesen að þá situr Ólöf bara hjá pabba sínum. Jónki ætlar nú bara að standa og taka myndir.

Svo er planað að hafa smá gleði um kvöldið, þó ekkert mega partý, frekar svona party light :-)
Hlakka semsagt til að ljúka þessu námi og taka á móti prófskírteininu og fagna svo með vinum og vandamönnum um kvöldið.

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Ekki með alveg réttar tölur

Ekki fékk ég lottóvinninginn núna. Var ekki með nema 2 réttar, frekar fúlt. Hefði sko alveg verið til í fá þann stóra núna, kannski bara næst.

Ég er búin í reikningshaldsprófinu og fannst ganga bara ágætlega :D nú er allt á fullu í ritgerðarvinnu og það á að vera búið 13. september þannig þangað til ....

laugardagur, ágúst 11, 2007

10 mánaða

Jeminn...
Litli drengurinn minn er 10 mánaða í dag :)
Til hamingju með daginn Ási minn.

Kv. mamma